þetta er það sem er að gerast.. (sið)blinda?

Látið orðið ganga...

Í Kastljósi verið að ræða húsnæðismálin, hvað væri búið að gera og hvað þyrfti
að gera. EINA umræðan er um afborganir. Afhverju talar ENGIN í alvöru um
eignaupptökuna, sem felst í þessu öllu???

Árið 2005 keypti ég íbúð á 22 milljónir. Sjálf átti ég 10 milljónir eftir að
hafa nurlað í 30 ár! Ég fékk 12 millj. lán í SPRON með föstum 4,15% vöxtum.
Íbúðaverðið hækkaði svo í 25 mill en þar sem ég ætlaði mér að vera hér þar til
börnin væru farin að heiman - eftir 5-7 ár eða svo græddi ég ekkert á því. Þá
hafði ég hugsað mér að minnka við mig og kannski í fyrsta skipti í lífinu að
eiga afgang af launum en ég er 55 ára.

Afborganir voru í byrjun 51 þúsund á mánuði og allt virðist í lagi þó
verðbólguspá Seðlabankans sem ALLTAF var í kring um 2-4% stæðist nú ekki alveg.

Nú, 3 og hálfu ári seinna er staðan þannig:

Lánið er komið í 15,2 og íbúðarverðið er komið niður í 18-19mill. Ég er að
reyna að selja en gengur ekki enda selst ekkert. Búið er að segja mér upp í
bankanum og ég fer á atvinnuleysisbætur eftir 2 mánuði.

Mér er sagt að á NÆSTU 12 mánuðum eða svo muni lánið mitt fara í minnst 18
milljónir, jafnvel enn hærra og verð íbúðarinnar sennilega niður í 16 - 17!!
Eign mín, 10 milljónir, sem eru hreint engi smáaurar fyrir konu sem hefur
unnið úti allan daginn og komið 3 börnum í gegnum háskóla og til manns - er
horfin!!! bara horfin og engin lætur sér þetta koma við!!!

Mér er líka sagt að ég geti bara búið hér áfram, greitt háar afborganir sem ég
þarf væntanlega að finna mér 2 störf til að hafa fyrir, verði ég svo HEPPIN að
fá 1 starf - hvað þá 2. Þó ég þræli í þessu starfi eða störfum þar til ég
drepst mun ég aldrei gera meir en skrimta og höfuðstóllinn mun halda áfram að
hækka.

Eignin muni svo smátt og smátt hækka í verði aftur, er mér sagt, en æææ , þá
hækkar líka verðbólgan og þar með lánið mitt ennþá meir!!!!!

Sem sagt - innan árs er ég eignalaus og telst heppin ef ég hef getað haldið í
við afborganir. Taki bankinn yfir íbúðina má guð vita hvort ég komi út á
sléttu eða jafnvel skulda ennþá. Þá þarf ég að gera mig gjaldþrota. Þarna er
ég, sem safnaði, keypti mjög skynsamlega, bara svipt aleigu minni og
ævisparnaði og allir eru að röfla um afborganir eða lengingu lána!!!!

Nota bene - lengi ég lánið í 70 ár - verður búið að greiða fyrir þessar
12milljónir sem teknar voru að láni, á vormánuðum 2005, kr. 1.354.824.000

Já- segi og skrifa - einn milljarð þrjúhundruð fimmtíuog fjórarmilljónir
átthundruð tuttugu og fjögur þúsund, miðað við 4,15% vexti og sömu verðhækkun
og hefur verið á síðustu 40 mánuðum, þe., 26%. Þarna er ekki verðbólguskotið

sem er væntanlegt, tekið með.

Sennilega munum við sem svona erum stödd, bara ganga út eins og gert er í
Ameríku. Þegar staðan er orðin þannig að stærsti hluti launanna fer í lánin
eða leiguna eins og það mun heita þá - þá göngum við bara út - hættum að borga.
Þá leggst allt endanlega á hliðina segja hagfræðingar ef fólk hættir að borga.

Þetta mun byrja að gerast seint á næsta ári sennilega eða snemma á 2010.
Hvað gerist þá???? það ætla ég ekki að lifa af skal ég segja ykkur. Íslensk
náttúra mun tilheyra mér sama hvaða banki fer á hausinn og í hana mun ég
leggjast einhverja nógu kalda nótt, “þakka” fyrir mig og óska ykkur hinum
blessunar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er alveg sammála. Þessi eignaupptaka er glæpur. Við verðum að reyna öll saman að berjast gegn henni. Hvað með fundina á Austurvelli og Nýja Ísland er ekki vettvangur þar til að berjast gegn þessu? Það skal vera einhver leið!

Baráttukveðjur. 

Jónína Óskarsdóttir (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 02:24

2 Smámynd: Hinrik Þór Svavarsson

fólk er búið að sjá sannleikann vinur. því finnst bara vont að láta troða honum upp á sig þegar aðrir eiga í hlut .. auðvitað vill enginn trúa því að heimsmyndin sem það byggði sé komin í þrot.. hins vegar er of snemmt að fara að lýsa vantrausti á fólk.. það er almennt taugaáfall að kikka inn hjá ótrúlega stórum hópi okkar fólks og vanmáttur okkar verður mörgum um megn er ég hræddur um.

Við verðum að átta okkur á því að í raun er mjög stuttur tími liðinn af þessari atburðarrás sem ég held að sé undanfari gríðarlegra breytinga á því sem við köllum lýðræði .. sjáðu til ..

Gaui Þórðar sagði alltaf þolinmæði er dyggð.. og beit nefið af blaðamönnum

til hamingju með fullveldisdaginn ..

lifi bylting fólksins

byltingin okkar!

Hinrik Þór Svavarsson, 1.12.2008 kl. 02:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband